Friday, November 11, 2011

Nagla prent

Sá þessa hugmynd á netinu um dagin og gjörsamlega varð! 
Fullkomið look í lærdómnum og dund sem hentar vel til að tæma hugann :)






Það sem þú þarft:
* Glært naglalakk
* Ljóst naglalakk (ég nota: Oh My GOSH, 023 light rose)
* Spritt
* Dagblað eða útprentaður texti með smáu letri ( ég notaði gamlar glósur)
* Naglabandahnífur, ég nota hann bæði til að snyrta neglurnar fyrir og til að ná lakki sem fer út fyrir.


Framkvæmd:
* Snyrtið og lakkið neglurnar með ljósa litnum
* Þegar lakkið er þurt seturu dropa af spritti á nöglina, tekur pappírsbút og þrýstir á (líka hægt að vera með spritt í skál og dýfa nöglinni). Leyfið bútnum að lyggja smá stund og strjúkið yfir svo prentið þrykkist vel.
* Lakkið yfir með glæru og snyrtið til ef þarf
* Ég mæli með að gera bara eina hendi í einu og láta allt þorna vel á milli skrefa 






Frábært viðfangsefni á kvöldin til að ná hausnum niður eftir daginn :)
Góða skemmtun!

2 comments:

  1. Kúl! Flott! En ef þú notar glósur skaltu passa þig að verða ekki tekin fyrir svindl í prófunum! ;)

    ReplyDelete