Ég veit ekki með ykkur, en ég á billjón skriljón klúta og trefla! Reyndar gæti það haft áhrif að ég er búin að vinna í Accessorize í rúm 4 ár.
Haustið er tíminn til að koma öllum þessum haug af hálsbúnaði í notkun, maður verður að nota þetta til að geta réttlætt kaupin :)
Við það að hjálpa íslenskum konum að kaupa sér fylgihluti í gegnum tíðina hef ég rekist á það að mjög margar konur verða svoldið týndar þegar þeim er réttur trefill og enda alltaf á að henda honum bara í einfaldann hring um hálsinn. Málið er að maður getur gert svo ótal margt með einn og sama klútinn, fallega á settur klútur getur gjörbreytt hversdagslegum klæðnaði.
Hérna er svo myndband sem er skemmtilega uppsett og rifjar upp fyrir manni hvað þetta gerir mikið!
Ég mæli sem sagt með að fólk renni í gegnum klútahauginn og sjá hvort að þar leynist ekki eitthvað skemmtilegt :)
Frábært blogg hjá þér Kristbjörg.. ég elska klúta myndbandið fékk fullt að góðum tipsum :) takk fyrir að vera til :) Gleðileg jól.. sjáumst.
ReplyDeletekveðja
Dadda