Ég elska líka skó... en stundum eru skór bara ekki að fitta inn í fataskápinn lengur, hvað gerir maður þá?
Gubbar glimmeri yfir þáááá.. VEI :D
Það sem þú þarft:
* Skó sem eru ekki að gera sig.
* Límlakk, fékk mitt í A4, passa að það þorni glært.
* Plast drasl til að hella lakkinu á til að auðvelda penslun
* Glimmer! Ég notaði bæði fínt og gróft og blandaði því saman
* Glas til að blanda saman í
* Pensil
* Undirlag, helst tvöfallt því þú þarft að geta hellt glimmerinu aftur ofaní glasið
Aðferð:
* Hreinsar og þurkar skóna
* Blandar glimmerinu eins og þú vilt hafa það ( ég keypti glimmer í megastore, þurfti 2 pakka af hvorri týpu því ég vildi ekki hafa þá of marglitaða)
* Málar lakkinu á lítil svæði í einu, ekki spara lakkið!
* Stráir glimmeri yfir, best að reyna að hilja sem mest í fyrstu umferð.
* Gott að skilja eitthvað þurrt svæði eftir til að geta gripið í t.d. hælinn.
Fyrsta umferð er grunnurinn, seinni umferðir eru þær sem skipta mestu máli.
* Best að leyfa fyrstu umferð að þorna vel, helst yfir nótt en ég held að lakki hafi verið þurrt eftir svona 4-5 klst.
* Umferð tvö er best að einbeita sér aðalega bara að þeim svæðum sem eru ennþá óglimmeruð og spasla uppí
* Þegar skórinn er orðinn eins mikið glimmeraður og þú vilt hafa hann er best að láta allt þorna aftur og enda svo með að mála yfir með lakki til að gera allt saman pikk fast á :)
Eftir að allt saman er tilbúið þarf líklega að ryksuga alla íbúðina! En það er þess virði því þú átt nýja awesome glimmer skó :)
P.S. Það er súper erfitt að taka myndir af skó á eigin löpp þannig að þið fáið ekki mynd af þeim við neitt dress eins og planið var! Og það er líka bara erfitt að taka myndir af glimmeri, kemur aldrei alveg rétti liturinn fram..