Það er á flestra vitorði að ég er með sílikon.
Það eru að verða komin 5 ár síðan ég tók mig til og keypti mér þann líkamspart sem á mig vantaði. Á þessum árum hef ég heyrt margar skoðanir á þessu málefni, aðalega þó frá fólki sem vissi ekki um innihald barms míns. Allt frá rökum öfga kristninar um að guð skapi okkur fullkomin til kvenna sem líta svo á að brjósta stækkanir séu ekkert annað en kapítalísk markaðsetning á kvennlíkamanum sem hlut.
Þess þarf varla að geta að ég er ósammála, en sem mannfræðingur skil ég afstöðu þessa fólks og virði þeirra skoðanir á málefninu. Mér finnst þó tímabært að segja sögun af því hvernig ég fékk brjóst.
13 ára: Engin brjóst, skiptir ekki máli þau koma seinna
14 ára: Engin brjóst, okey
14 ára: Engin brjóst, okey
15 ára: Engin brjóst, fólk farið að taka eftir að á mig vantar líkamspart og slíkt er upplagt sem skotmark í stríði.
16 ára: Engin brjóst, á mig vantar líkamspart sem aðrir hafa og það er ekki að fara breytast. Mér ber að skammast mín fyrir að íhuga brjóstastækkun, slíkt er bara fyrir druslur og strippara.
Í menntaskóla tók lygin við, ég keypti A brjóstarhaldara og fyllti þá með púðum, passaði upp á að hilma yfir lygina með því að fara takmarkað í sund og alltaf í sturtu heima eftir leikfimi. Nú myndu margir segja: sjáðu bölvunina sem markaðsetning kvennlíkamans hefur gert þér! Við því segi ég, nei, afhverju endilega að horfa á brjósta stækkun sem eitthvað tengdu markaðsetningu kynþokka og staðalímynda.
Ég lít á brjóst sem líkamspart, alveg eins og alla aðra líkamsparta, ég tel að konur hafi rétt á því að gefa börnunum sínum brjóst á almanna færi af því að brjóst eru ekkert annað en líkamspartur. Ekki kyntákn sem okkur ber að skammast okkar fyrir!
Nú langar mig að gefa ykkur sem ósammála mér eruð dæmi. Ég kem úr brjóst góðri fjölskyldu og án þess að hafa hugsað mikið út í það þá bjóst ég fastlega við því að ég yrði engin undantekning. Segjum sem svo að þú sért 13 ára, vaknar á afmælisdeginum þínum, allt virðist venjulegt þangað til að þú kveikir ljósið og ætlar að byrja klæða þig í fötin. Á fingur annarar handar vantar 1 centimeter. Mikið sjokk, þú bjóst ekki við að á þig myndi neitt vanta. Á hverjum afmælisdegi hverfur 1 centimetri af fingrunum og á 16. afmælisdeginum er þér ljóst að þú ert fingralaus á annari hendi, líkamspartur sem þú tókst sem sjálfsögðum hlut er ekki til staðar. Þú ferð í gegnum næstu ár, lifir svo gott sem eðlilegu lífi en samt vantar alltaf eitthvað. Eftir nokkur ár býðst þér tækifæri til að leiðrétta þetta, græða á þig nýja fullkomna fingur, eignast fullmótaðan líkama.
Segiru nei?
Þegar ég var 20 ára breyttist líf mitt, með hljálp og stuðning undursamlegrar fjölskyldu fékk ég ígræðslu líkamsparts sem á mig vantaði. Ég var þá, loksins, heil.. á mig vantaði ekkert og ég gat stolt staðið nakin í klefum sundlauga án þess að 12 ára stelpur gerðu að mér grín. Það vantaði ekki á mig hendi, ég þurfti ekki heyrnartæki, það vantaði ekki í mig tennur. Við setjum ekki út á fólk sem lagar þessa líkamlegu vankanta, afhverju höfum við skotleyfi á konur sem fá ekki brjóst?
Ég lita ekki á mér hárið
Ég steypi ekki á mig neglur
Ég spreyja ekki á mig brúnku
Ég fer ekki í ljós
Ég hvítta ekki í mér tennurnar
En á bringubeininu mínu lyggja hinsvegar 600ml af sílikoni, fáir hafa hingað til tekið eftir því fyrr en ég nefni það sjálf, samt er ég meira fake en allir aðrir af því að ég lagðist undir hnífinn. Ég er skotmark af því að ég breytti líkama mínum til að láta mér líða betur. Hver hérna breytir ekki líkama sínum? Hvenær fórstu síðast í klippingu? Eða í ræktina?
Ef að þér líður best með litað hár og brúna húð, vertu þá með litað hár og brúna húð!
Ef að þér líður best ómáluð í second hand fötum, vertu þá ómáluð í second hand fötum!
Ef að þér líður best í íþróttagalla með prótein sjeik, vertu þá í íþróttagalla með próteinsjeik!
Við höfum öll okkar skoðanir, okkar sýn og okkar vankanta, sýnum hvort öðru smá virðingu og gefum fólk rétt á því að velja hvað það gerir með sinn eiginn líkama.
Ást og friður
Kristbjörg Una