Ég er með afskaplega mikið af hári.. það getur verið óþolandi en líka alveg sjúklega skemmtilegt. Hárið mitt er frekar þykkt og líka mjög gróft. Ég hef vanið mig á að þvo það ekki oftar en 3x í viku, fyrst og fremst færi ég endanlega á hausinn ef ég þyrfti að kaupa meiri hárnæringu en ég geri nú þegar og í öðrulagi finnst mér það vera náttúrulegra, mýkra og viðráðanlegra ef ég þvæ það sjaldnar. En vandamálið við þetta fyrirkomulag er að hárið verður oft svoldið beiglað og líflaust milli þvotta en við því eru til ótal lausnir. Hér koma nokkrar af mínum uppáhalds.
1. Þurrsjampó sprey.. they do wonders! Sérstaklega ef maður er með topp og sítt hár..
2. Sofa með fléttur, mismunandi fléttur gefa mismunandi lúkk daginn eftir.
3. Bleita upp í endunum og fara snögt með hárblásarann yfir allt saman gefur líf og lyftu.
Svo er það mitt allra allra mesta "bjútí leyndarmál".. ég segi ykkur þetta í fullum trúnaði!
Allt sem þú þarft eru nokkrir strendingar af bómullarefni. Ég átti afganga í efnispokanum, hægt er að nota gamlar tuskur jafn vel sokka.. bara einhverja efnisbúta.
Ég er með búta í nokkrum lengdum, allt frá 10 cm upp í alveg 40 cm.. gott að miða við að hafa þá amk. jafn langa og lofinn á þér.
Myndir:
1. Líflaust hár eftir langan dag
2. Taktu lokk af hári, rendu í gegnum hann með blauta putta þannig að hann verði rakur, ekki blautur samt! Næst er að vefja lokknum um efnisbútinn. Mér finnst betra að vefja hárið inn á við, sem sagt í átt að andlitinu.
3. Þegar þú hefur vafið hárinu smekklega upp á efnið binduru endana rækilegasaman. Ég er vanalega með 3-5 vefjur í einu.
4. Best er að gera þetta fyrir svefnin , þessvegna er líka gott að reyna hafa vefjurnar ekki mikið hærra en kjálkalínan til að þeir trufli ekki svefnin. Þetta tekur dálitla stund að virka þannig að þetta virkar best á nóttunni en samt alveg hægt að flíta fyrir ferlinu með hárblásara.
Svo er bara að vakna daginn eftir og fjarlægja bútana rólega úr, greiða laust í gegnum liðina með fingrunum og laga þá til eftir hentusemi. Gott að henda smá froðu í herlegheitin. Útkoman:
Babydoll krullur, án hita á einni nóttu :)
Virkar frábærlega ef maður ætlar að gera greiðslur og vantar meiri volume í hárið.. líka flott að flétta efrihlutan og hafa krullurnar svo lausar í endunum.
Ég mana ykkur til að prófa þetta.. ótrúlega mikil snild að mínu mati, kemur sterkt inn fyrir öll jólaboðin :)